surprise surprise
nei maríannna þú ert ekki að sjá ofsjónir, ég er að blogga og ætla meira að segja að segja frá ferðinni okkar
vá mér leiðist svo mega mikið akkúrat núna! ótrúlegt hvað tölvan drepur samt tímann, vá hvar væri ég án hennar?? langar ekki einu sinni að pæla í því........anyways þá fór ég í bíó áðan með Hönnu Rún og Eygló Mjöll á Alvin and the Chipmunks ekkert smá skemmtileg og krúttleg mynd, mæli með að þið sjáið hana 
okey hvar á ég að byrja....mmmm eins og þið vitið allar þá kíkti ég og Maríanna til DK 15.des í 4 daga, fórum eldsnemma um morguninn og pabbi gamli skutlaði okkur útá völl
fórum í flugvélina og svo í lestina og allt var búið að ganga rosa vel þangað til við vorum að fara í lestina þá opnaðist ekki vagninn sem við áttum að fara í þannig við þurftum að fara í næsta vagn gerðum það bara af því að eikkað annað fólk gerði það líka......svo eftir smá tíma þá var eikkað babblað á dönsku og við eikkað uuuuu okey HVAÐ var hann að segja, ekkert verið að hafa fyrir því að segja þetta á ensku líka! svo að aðrir skilji nei nei, allavega þá komumst við að því hvað var sagt og við áttum semsagt að hlaupa út á næstu stoppustöð yfir í okkar vagn með allt draslið okkar og vera fljótar að því hehehe enþað heppnaðist fínt
.......vorum rúma 3 tíma á leiðinni og Hanna tók á móti okkur
vá hvað það var gaman að sjá hana :* byrjuðum á því að fara uppí íbúð með draslið og sona taka okkur til.....kíktum svo út að borða á BarBQ svo eftir það þá ákvað ég og Malla að koma við á Kaffe Viktor og fá okkur einn Mohito þannig Hanna og vinkona henanr fóru bara heim.....enn þessi eini Mohito urðu aðeins fleiri drykkir hehe
svaka fjör
Sunnudagurinn fór allur í að versla og bara videogláp og nammiát um kvöldið, síðan á mánudeginum versluðum við meira
ótrúlegt hvað það tekur á að versla sona en þetta var sjúklega gaman vá sko ekkert skemmtilegra en að geta bara misst sig í búðunum
svo á þriðjudeginum þá áttum við að fljuga heim um kvöldið, ákváðum að taka lest klukkan 9 um morgunin yfir til köben til að geta eytt deginum á strikinu og verslað meira þar hehe við vorum búnar á því þegar við vorum komnar á flugvöllinn um kvöldið.... hlakkaði ýkt til að geta sest uppí flugvél og slappað af en nei nei þá var brjáluð seinkun og við þurftum að hanga þarna á vellinum og síðan standa í biðröð í eikkern hálftíma til að komast inní vél og þetta var ömuleg vél pinkulítil sæti og sætið fyrir framan mann var allveg oní manni og ef að manneksjan hallaði ser aftur þá lá hún í fanginu á manni!! svo var ekki loft þarna inni stútfull vél og ekki hægt að anda, vá ég fékk svo mikla innilokunarkend ég ætla aldrei að ferðast með iceldand express!
en Maríanna og Hanna takk fyrir ýkt skemmtilega ferð 
krúsídúllurnar mínar........ ótrúlegt en satt þá er ég komin með "ógeð" á því að versla hehe, svo eru að byrja útsölur! allamalla ......næst á dagskrá er að kaupa annan fataskáp! 
held þetta sé ein sú leiðilegasta ferðasaga sem hefur verið skrifuð! gerðum bara voða lítið annað en að eyða pening glápa á video og borða nammi
þannig ekki mikið hægt að segja
en allavega búin að gera einni mannsekju til geðs með því að blogga
hehe
Áramótin já þau eru á morgun, ég trúi ekki hvað þetta ár er búið að vera fljótt að líða
búið að vera frábært ár samt
........ætla ekki allir að vera með sona áramótaheit?? ég er allavega með þannig
síðasta fylleríið mitt er semsagt annaðkvöld svo EKKERT fyrr en ég held uppá tvítugs ammælið mitt þann 12.apríl
ætli mér takist það??
...........................alltí einu bara tóm í hausnum veit ekki hvað ég á að segja meir
hehehe jú eitt lítið Gullkorn, ég fór á pizza company áðan með Bigga og Hönnu Rún og á leiðinni úti bíl eftir að vera búin að borða sjúkar pizzur þá spyr Biggi hvort ég hafi eikkern tímann borðað á Argentinu og þá heyrist í Hönnu: HEY er ekki til land sem heitir Argentína?? hehe Hanna þú ert æði
P.s hver býðir sig fram í að setja inn myndir? allar dottnar útaf
ég kann ekki að gera það.
jæja elskurnar ég er farin að sofa sjáumst hressar og kátar annaðkvöld 
újeee
kiss kiss :* Unnur gullmoli